Magnús Ingi fæddist eftir 32ja vikna meðgöngu, mánudaginn 21. júlí 2008.
Hann vó 1.990gr.


Ólína María fæddist eftir 32ja vikna og 2ja daga meðgöngu, laugardaginn 26. september 2009.
Hún vó 2.340gr.

Heppnu foreldrar okkar heita Ásgeir & GuðnýÞóra

 



Magnús Ingi var 5 vikur á vökudeild LSH - Ólína María var 3 vikur á vökudeild LSH.



Mamma okkar & pabbi geta seint fullþakkað þá hlýju umönnun & alúð sem okkur var sýnd.



Barn í voginni
Barn í voginni er fæddur málamiðlari sem elskar friðinn og vill að öllum komi vel saman. Sáttasemjari leikvallarins er mættur! Með þessum eiginleika fylgir ákveðin nákvæmni og glæsileiki sem hjálpar barni í þessu merki við að komast áfram og fá það sem það vill. Mjög erfitt er að mótmæla og rífast við vogina vegna þess hve sveigjanleg hún er. Þar sem þetta barn er samvinnufúst og í góðu jafnvægi þá á barnið mikið af vinum og allir leika sér saman í sátt og samlyndi. Vogin elskar að eyða tíma sínum með félögunum, því barn í vog er mikil félagsvera sem vill miklu frekar leika sér í hóp en að vera eitt að leika. Vogin er námsfús og fær góðar einkunnir út úr prófum. Þetta barn kemur ávallt vel fyrir og vandar sína framkomu. Vogin getur átt það til að vera hverflynd og óákveðin og þú skalt ekki hika við að taka ákvörðun fyrir barnið þegar það sýnir þessi einkenni. Það er nú bara þannig að barn í voginni hefur tilhneigingu til að setja sig í spor allra sem að málinu koma og því getur verið erfitt að taka “réttu” ákvörðunina. Svo sannarlega fæddur sáttasemjari. Að lokum, barn í voginni á það til að eiga erfitt með einbeitingu, svo hafðu auga með því til að halda því á réttri braut, sérstaklega þegar það er að lesa.


Barn í krabbamerki
Barn í krabbamerkinu er feimið og viðkvæmt að eðlisfari og vill frekar leika inni í sínu herbergi heldur en að fara út og takast á við hina “ógnvænlegu” veröld. Þessi börn eru einnig tilfinninganæm og bresta auðveldlega í grát ef hlutirnir ganga ekki eins og þau vilja eða ef gengur á einhverju í fjölskyldunni. Þessi börn vilja ró og næði í kringum sig. Þar sem barn í krabbanum heldur sig nálægt heimili sínu má búast við að það hangi svolítið í pilsfaldinum hjá mömmu fram eftir aldri. Það getur þó verið kostur þar sem krabbinn elskar að hjálpa til. Móðureðli er ríkt í krabbabörnum og þau hugsa vel um yngri systkini sín ef þau eiga yngri systkini. Þetta barn er fædd barnapía og er vanalega með öll börnin í hverfinu í eftirdragi og hefur ofan fyrir þeim með allskyns leikjum. Þetta barn býr yfir frábæru minni og því er nám og próf leikur einn. Krabbinn getur stundum verið erfiður í skapinu og þá er best að leyfa honum að vera í friði. Stundum vorkennir barn í krabbanum sér rosalega og verður jafnvel svolítið latt en það varir yfirleitt stutt. Oftast er voðalega gaman í kringum krabbann. Barn í krabbamerkinu er yfirleitt heimakært og er mikið fyrir fjölskyldulífið og er sá einstaklingur í fjölskyldunni sem finnst skemmtilegast í fjölskylduboðum og á ættarmótum

þarna! :)